Rófur eru hreint frábærar í matargerð, bakaðar, soðnar, hráar og svona mætti lengi telja.
Upphefjum rófurnar! Hér kemur ein uppskrift sem er sívinsæl og er meðlæti fyrir sex.
- 50 ml olía
- 1-2 laukar, smátt saxaðir
- 2 rófur, u.þ.b. 500 g, skrældar og skornar í fingurbreiða bita
- 150 g ananas, kaupi niðurskorinn
- 1 msk. hunang, agave eða það sætuefni sem passar þér og til er í skápnum
- 4 msk. tómatsósa, íslenska sósan
- 200 ml pastasósa, íslenska sósan
- 1 msk. sítrónusafi
- 200 ml appelsínusafi
- 2 tsk. gróft salt
- 1 tsk. svartur pipar
- 1 msk. lífræn sojasósa
- 1 smátt saxaður hvítlauksgeiri
- 2 msk. engifersafi
- 1 pakki basilíka
- Hita skal olíuna, steikja lauk og hvítlauk létt, bæta rófum saman við og halda áfram að steikja.
- Setja krydd, sósur og safa út í, lækka undir og láta malla í 30 mín.
- Að lokum er ananasnum bætt við og skreytt með basilíkulaufum.