Heimild: Magnús Jóhannsson (1985): Gulrófur með öllum mat. Útgefið af Félagi gulrófnabænda.
- 250 gr hveiti
- 1 ½ dl vatn
- 1 tsk þurrger eða um 25 gr pressuger
- ½ tesk salt
- Fylling:
- 1 msk smjör
- 150 gr saltað flesk
- 250 gr nýjir eða niðursoðnir sveppir
- 350 gr gulrófur
- ½ blaðlaukur (púrra)
- 1 msk hveiti
- ½ teningur af kjötkrafti
- 1 tsk mexikönsk kryddblanda
- 10 gr rifinn ostur
- Útbúið venjulegt gerdeig og látið það lyfta sér.
- Skerið fleskið í strimla og steikið á pönnu.
- Sveppirnir eru skornir í 2-3 bita, settir á pönnuna og látnir linast.
- Ef niðursoðnir sveppir eru notaðir setjið þá ½ dl af kraftinum með á pönnuna.
- Skerið gulrófurnar í teninga og blaðlaukinn í sneiðar.
- Látið steikjast á pönnu í um 15 mín.
- Setjið þá kjötkraftsteninginn saman við og kryddið.
- Kælið lítillega, setjið ostinn í og látið hann bráðna.
- Fletjið út deigið og klæðið form með því.
- Leggið fyllinguna á deigið og setjið í ofn.
- Bakist á rist neðst í ofni við 250°C í um 25 mín.