Heimild: Magnús Jóhannsson (1985): Gulrófur með öllum mat. Útgefið af Félagi gulrófnabænda.
- 1 kg gulrófur
- Kjötdeig úr ½ kg af kjöti
- Skerið lok af hverri rófu og holið þær að innan með teskeið.
- Fyllið holin með kjötdeigi og setjið lokin á.
- Bindið utan um.
- Sjóðið í saltvatni þar til rófur og kjötdeig er soðið.
- Berið fram með hvítri sósu eða bræddu smjöri.
- Gerið rófustöppu úr afganginum og berið með.