Rúnar er talsmaður íslenskrar matargerðarlistar og þess að nota í hana íslenskt hráefni.
- 3 rófur
- 2 gulrætur
- 2 laukar
- 3 væn hvítlauksrif
- ögn af paprikudufti, karríi og broddkúmeni
- 1 tsk. tómatkraftur
- 1 msk. smjör
- skvetta Worcestershire-sósa
- sjávarsalt frá Norður salti
- engiferrót
- 2 tsk. grænmetiskraftur
- Rófurnar eru skrúbbaðar með góðum bursta í köldu vatni og þerraðar vel, nuddaðar upp úr kaldpressaðri góðri olíu og salti og bakaðar með hýðinu ásamt gulrótunum.
- Smjörið brúnað, lauk, hvítlauk, engiferi, kryddi og tómatkrafti bætt út í og hrært hraustlega í pottinum svo að ekki brenni við.
- Þegar þetta ilmar mátulega er vatni bætt við svo að yfir fljóti og látið malla.
- Þegar rófurnar eru tilbúnar eru þær fláðar og hýðið lagt í ofnskúffu með sárið upp, olíu og salti dreift lauslega yfir og bakað áfram uns hýðið er stökkt.
- Rófur og gulrætur settar í pottinn með lauknum og kryddinu og allt maukað saman og smakkað til með Worcestershire-sósu.
- Ef til vill þarf að þynna súpuna með grænmetissoði en hún á þó að vera allþykk.
- Súpan er svo borin fram með þeyttum sýrðum rjóma, saxaðri steinselju, chili-pipar, hvannarfræjum og stökku rófuhýði.