Sveinn rekur AALTO bistro veitinga- og kaffihús í Norræna húsinu.
- 1 stór rófa
- 1 hvítlauksrif
- 8 basilíkublöð
- 4 stönglar steinselja
- 4 msk. heslihnetuolía
- salt og nýmulinn pipar
- 4 þroskaðir tómatar
- 200 g niðurlögð rauð paprika
- ½ rauður chili-pipar
- fræ úr ¼ af granatepli
- 10 pistasíuhnetur
- 8 msk. kotasæla
- hrökkbrauð
- grænkálsblöð
- Rófan skræld og skorin í fjórar álíka þykkar sneiðar.
- Hvítlaukur og kryddjurtir maukað vel saman og heslihnetuolíunni bætt við.
- Helmingnum af maukinu smurt á rófurnar, saltað og piprað.
- Rófusneiðar og tómatar bakað í u.þ.b. 15 mínútur í 200°C heitum ofni.
- Paprika og chili-pipar saxað niður og granateplafræjum blandað saman við. Hinum helmingnum af kryddjurtamaukinu hrært saman við kotasælu.
- Pistasíuhnetur ristaðar og muldar gróft.
- Grænkál bakað við 130°C í u.þ.b. 15 mínútur eða þar til það er orðið stökkt.
- Setjið hrökkbrauð á disk og helminginn af paprikusalsanu á kexið, síðan rófuna, þá bakaða tómatinn og kotasæluna.
- Setjið restina af paprikusalsanu til hliðar, dreifið pistasíuhnetunum yfir og að lokum stökku grænkálinu.